Ađalvalmynd

Ţema ...allir ađ fara ađ undirbúa :D

22. júní 2009 klukkan 23:05
Laugardagskvöld- Þema!

Við ætlumst til að hugmyndaflugið fari á fullt og þið komið allar sem skrautlegastar :D
Farið með búningamálin ALLA LEIÐ!!
Nei Herdís ekki vera nakin með bara brúnkukrem ;) haha


GULT DRESS- allt gult!


Ljót gleraugu



Hárkolla


Bílamál? hver vill vera á bíl? vantar 2 drivera

Sundföt munið eftir þeim:)

Verður bolla? skemmtinefndin er spennt fyrir bollu :)

Tímasetning? hvenær getum við lagt af stað?

Tónlist? komið með hugmyndir af tónlist...við erum að vinna í skemmtilegum playlista :)

kveðja skemmtinefnd

Klemmus on the kleik:D

16. júní 2009 klukkan 14:24
Innilega velkomin heim til okkar elsku Thelman okkar...loksins erum við allar sameinaðar á ný síðan í janúar..úffúff..alltof langt:D
Í tilefni þess ætlum við kjötin að hittast í kvöld, held ég heima hjá Thelmu..kemur í ljós með deginum og drekka okkur í hel..hehe nei verum dannaðar :D kíkja svo á smá vegó tjútt og segja hvor annarri hvað við elskum hvor aðra mikið:D
auðvitað er 17.júní á morgun, þannig að við getum verið sveittar, en ekki of sjúklega..hehe ;)

Hills verður út á landi, en hún verður með okkur í hjartanu...

hlakka til að sjá ykkur í kvöld..spurning hvar og hvenær en er ekki 9 alltaf gourmet tími..hehe:D

heyri í ykkur krúsir:D

love :D

Ellert....

Saumaklúbbur :D

07. júní 2009 klukkan 20:39
Sætu kjötin mín...

Ég ætla að halda saumó á þriðjudaginn 9.júní klukkan 20 :) verð með léttar veitingar og mönch fyrir dúllurnar mínar:D
Saumó mun verða á Sólvallagötu 16, 101 Reykjavík hjá Helgu Lilju :)


Endilega commentið hvort þið komist eður ei :D

knús,
ykkar...Elísabet :)

Ćtlađi bara ađ láta vita ađ ţađ eru 11 dagar í mig!!

05. júní 2009 klukkan 11:14
ELLEFU dagar eftir af þessu prófarugli! Er alveg að fara yfir um. Föst hérna inni í herbergi að reyna að troða meinafræði inn í hausinn á mér. Biðst velvirðingar á öllum steiktum kommentum á facebook og annarstaðar. It´s not my fault hehe

En að góðu fréttunum.. Hafdís og Hannes ætla að vera svo æðisleg að lána okkur bústaðinn sinn 27. júní (er það ekki rétt hjá mér?) Þannig að skemmtinefnd og matarnefnd getur byrjað að brainstorma.. Okkur vantar eitthvað gúrme þema og eitthvað skemmtilegt að gera þarna í kring á laugardeginum kannski.. Hef minnstar áhyggjur af matarnefndinni þar sem Hildur verður í henni en fínt kannski að Elísabet passi upp á að hún kaupi ekki OF mikið af mat hehe

 One last question.. Er potturinn kominn í stand Gauja ?? Annars getum við Íris bara farið út með lukt eins og seinast og fixað þetta ;) hehe







 
ELLEFU!!!
Giggs er kóngurinn nananananan..

Nú er sumar...gleđjumst....

03. júní 2009 klukkan 11:06
 

Elsku sætu kjötin mín:D

Þá fara kjötin að tínast til landsins..finally..hehe...Hildur okkar komin heim :D og í tilefni þess ætlum við að sameinast hjá henni annað kvöld, fim. 4.júní klukkan 20, megið koma fyrr ef þið viljið :D tékkið bara á stelpunni ;)

Ætlum að borða saman og chilla og slúðra og hafa gaman..njóta nærveru hvor annarrar:D

Við munum reyndar ekki borða fyrr en um svona 21, þannig fáið ykkur smá snarl eftir vinnu ef þið eruð svangar;) vegna þess að Dagný er í sundi með Eddu Lillý og ætlar svo að drífa sig heim og gefa henni og koma svo til okkar svo að við getum verið hjá Hildi þar sem krílin hennar tvö þurfa að fara að lúlla:D

Hvaðan viljið þið panta mat? Getum svo sem líka ákveðið það á morgun, en fínt að hafa einhverjar hugmyndir um það:D

 

Knús,

Hlakka til að sjá ykkur....

Elísabet....sumarið er tíminn:D ó já:D nes og klemm..drífið ykkur heim....hehe:D

Sunnudagurinn 31.maí

29. maí 2009 klukkan 16:28

Við Beta erum að plana að fara eitthvað út úr bænum og labba á einhvern æði fallegan og skemmtilegan stað.
Ellert mun sjá um að plana nesti- Í guðanna bænum Ellert sjáðu um nestið (hún hefur sko meiri áhyggjur af því heldur en hvert við erum að fara! Bestur þessi Ellert)

En það sem við höfum verið að pæla í að fara er:
Keyra innst í Hvalfjörð og labba að Glymi sem er hæsti foss landsins (198 m)
eða keyra að Kirkjubæjarklaustri og labba eð þar... eða keyra í þá átt og finna fallegan hól sem tekur smá tíma að labba á :) heheh
uhhh Akrafjall?
Þetta er allt í vinnslu eins og stendur.

Langar ykkur að koma með?
Þetta er nú sunnudagur svo fólk verður ekkert rifið upp klukkan 10. Segjum bara um 12-13 eða eð?
langar ykkur ekki geggjað að koma með í smá hreyfingu og hollustu ala Ellert B :D

komment plís :)

SUMAR SUMAR SUMAR SUMAR SUMAR SUMAR SUMAR

24. maí 2009 klukkan 16:47
sUmArÁrShÁtÍð KjArNaKjÖtA

 27.-28. JÚnÍ 2009 !!!

Niðurtalning er hafin..

(Þema auglýst síðar)

Þeir sem hafa boðað komu sína eru:



Gussi Glamúr (Öðru nafni Fulla-Gauja)



Æsti-Ellert (sér um að halda liðinu æstu, á ekki erfitt með það..)



Drykkju-Dagný!! (you know it Dagný!!)



Tequila Thelma (Gauja ég er sko ekki búin að gleyma loforðinu haha ;) )



Naked-Nesi (Ætlar að vera með smá boob show. Dagný er búin að taka Hverfis og Hanna Vegó, hver er næst ??)



Íris armbeygja (sér um skemmtiatriði kvöldsins, held ég þurfi ekkert að útskýra það nánar)



Hildur hraðbombari (sér um að sjokkera liðið, hver veit nema "ég hef aldrei leikurinn" verði TEKINN)

og síðast en ekki síst



G-string Dísa (Við erum ekki ennþá sannfærðar, þú verður að sýna okkur aftur í þetta skiptið)

---------
Engin tilvlijun að allir eru með áfengið við hönd á myndunum því þetta verður sko ekki bindindishelgi!!

Það var miserfitt að finna drykkjumyndir af ykkur og ótrúlegt en satt þá fann ég flestar af Dagnýju haha


LATER DUDES!! MÆTI Á KLAKANN EFTIR 23 DAGA. GET EKKI BEÐIÐ - EINS GOTT AÐ GÓÐA VEÐRIÐ HALDIST AFRAM :D

Bústađarmál

19. maí 2009 klukkan 12:39
Eru komnar einhverjar niðurstöður á bústaðamálin ?? Hildur varst þú ekki með eitthvað i sigtinu ??

Lítur allavega út fyrir að við verðum 8 þarna á föstudeginum og svo á laugardeginum 8+5+börn

Allavega fínt að vita staðsetninguna svo skemmtinefndin geti byrjað að plana út frá því :)

Er orðin svo spennt að hitta ykkur :)

T-DOG



Set hérna inn uppáhaldslagið hennar Írisar Hrundar í tilefni sólarinnar á Íslandi

Frétti að Gauja hefði misst sig aðeins í sólinni í gær hehe love it :) !!

Hildur að mæta á klakann eftir 12 daga!

Hanna bara flutt til Germany..

Dagný hot sexy mama í bænum á lau. Love it :)

Elísabet startar sumrinu með því að vera æst í að plana hittinga

Herdís  byrjuð í sumarverkefnunum (djamma, grilla og tana, you name it!)

ALLT AÐ GERAST!!!

Hittingur á mánudag:D

15. maí 2009 klukkan 14:19
 

Við hérna svölu kjötin...ég, dagný,gauja og íris hrund ætlum svo sannarlega að taka vel á því í svitanum á lau, gerum þetta fyrir ykkur hinar sem eruð erlendis eða uppteknar!

Hlakka til sætu stelpur:D

Svo langar mig svo að chilla og leika meira við ykkur..þið sem eruð á landinu...eruð þið til í kjöta hitting á mánudagskvöld? Mig langar allavega svaka mikið..hehe:D gætum farið á kaffihús eða bara chillað hjá einhverri af ykkur, ég á nefla bara svo lítið herbergi, en þið hinar svo fallegar íbúðir..hehe...getið samt alveg komið í herbergið mitt..nóg pláss á rúminu..hehe:D

Hvað segiði um chill nammi hitting á góðum stað :D ???

Sumarknús,

Elísabet

SUMAR :)

28. apríl 2009 klukkan 13:58

GLEÐILEGT SUMAR sætu dúllurnar mínar :)

Svo gaman að sumarið er komið, þið verðið að vera duglegar að leika svo ég drepist ekki úr leiðindum sökum vinnuleysis.... allir sem eru til í að fara í sund og tana í sumar bjalla í mig, því ég ætla að tana alvarlega ef það verður sól :)  

 Þarna vorum við allar saman um jólin, allar hvítar og sætar ( sést ekki sökum brúnkukrems hjá sumum, haha)



alltaf svo gaman hjá okkur :)




Sumarið 2007 minnir mig :)



Sumar 2008... Klárlega mestu naglarnir hér á ferð :)




Hérna er klárlega ekkert brúnkukrem á fólki, haha :) 




Það verða KLÁRLEGA tekin mörg svona í sumar :) ég er meira að segja búin að lofa að splæsa nokkrum á Thelmu, haha :)



Djöfull erum við endalaust heitar, það er eiginlega bara vandræðilegt :)



EEEEEEEN yfir í annað leiðindarmál.. þegar við ákváðum árshátíðina 26 og 27. júní þá var ég alveg steikt og fattaði ekki að tékka á bikarleikjum, og það er akkurat bikarleikur 27. klukkan 14:00... þar sem við komumst allar þessa helgi og erfitt að finna annan tíma, þá höfum við þetta bara þannig að ég kem á fös með ykkur, verð bara edrú það kvöld:( síðan keyri ég í bæinn snemma á lau, keppi og keyri þá með mökunum upp eftir og tek GOTT djamm á laugardeginum:) ÍHA

Útlendingar fariði síðan að DRULLA ykkur á klakann :)

Gauja

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Thelma Dögg komin heim

Sumarárshátíđin

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...